Innlent

Sviptur ökuleyfi á þrjátíu götu

Ökumaður var sviptur ökuleyfi eftir að hafa ekið á 64 kílómetra hraða við Engjaveg í dag en þar er hámarkshraði 30 kílómetra hraði.

Lögreglan hefur fylgst náið með hraða ökumanna á veginum undanfarna viku. En ökumaðurinn í dag er sá fyrsti sem er sviptur ökuleyfi. Hann missir ökuleyfið í þrjá mánuð og fær auk þess fjóra punkta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×