Játuðu fyrir dómi að hafa hreinsað út úr íbúð 23. febrúar 2011 12:22
Tvær konur játuðu í gær fyrir Héraðsdómi Reykjaness að hafa hreinsað allt innbú út úr íbúð áður hún var sett á uppboð. Íbúðin var veðsett fyrir 30 milljónir. Tvö mál voru þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær þar sem ákært er fyrir sömu sakir. Konurnar, sem bjuggu í Garði, voru ákærðar fyrir skilasvik. Málið kom upp í nóvember 2008. Í ákærunni, sem gefin er út af lögreglustjóranum á Suðurnesjum, segir að konurnar hafi fjarlægt allar innihurðir ásamt körmum úr íbúðinni. Baðinnréttingar og eldhúsinnréttingar hafi verið teknar auk þess sem rafmagnstenglar hafi verið fjarlægðir. Þetta mun hafa verið gert án heimildar veðhafans sem í þessu tilviki var Landsbanki Íslands. Íbúðin var veðsett fyrir ríflega 31 milljón krónur og taldi bankinn verðmæti þeirra hluta sem fjarlægðir voru úr íbúðinni nema um fimm og hálfri milljón. Eignin var seld nauðungarsölu þann 5. nóvember 2008 og var bankinn kaupandi hennar. Konurnar tvær játuðu sök fyrir dómi og verður því ekki aðalmeðferð í málinu. Annað mál af sama toga var hins vegar einnig tekið fyrir í gær. Það mál kom einnig upp á Suðurnesjum. Ungt par í Sandgerði var ákært fyrir að hafa fjarlægt ofn úr stofu, sjö ofnkrana, baðinnréttingar, 150 fermetra hellulögn, sólpall og heitan pott, áður en eignin var sett á uppboð. Parið neitar sök og segist hafa staðið í endurbótum á húsinu og mun því málið fara í aðalmeðferð fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Íslandsbanki telur andvirði þess sem parið fjarlægði úr eigninni nema um 5 milljónum. Bankinn keypti eignina á nauðungarsölu í apríl 2010.
Mest lesið Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Innlent USS Abraham Lincoln skipað að flýta för sinni til Mið-Austurlanda Erlent Tom Cruise seig og sveif og tók við fánanum fyrir hönd Los Angeles Erlent „Fullorðna fólk, grow up!“ Innlent Djúp lægð fer yfir landið Veður Búið að slökkva eldinn í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu Erlent Vonir bundnar við „heilagan kaleik“ við sykursýki Erlent Næsta lægð nálgast landið og færir með sér gula viðvörun Veður Úkraínumenn vilji valda upplausn Erlent Eigi að standa saman um fjárfestingu í jafnrétti til náms Innlent Fleiri fréttir Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Eigi að standa saman um fjárfestingu í jafnrétti til náms Allt svo snyrtilegt við höfnina í Vestmannaeyjum Löturhæg umferð inn í borgina Námsgögn verði einnig gjaldfrjáls í framhaldsskólum Þyrluflugmenn uggandi: „Klárt að þetta hefur neikvæð áhrif“ Þykir sárt að vera stunginn í bakið af vini sínum Treystir Útlendingastofnun fullkomlega Eldur í flugskýli í Múlakoti í nótt Fjölskyldur sendar úr landi og viðvörunarkerfi í Grindavík Enn gasmengun í lægðum en rafleiðni nálgast eðlileg gildi Sérsveitin kölluð til vegna manns sem skaut úr haglabyssu „Fullorðna fólk, grow up!“ Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Helgi Magnús ritar ráðherra bréf og Ásmundur Einar um menntakerfið Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Mótmæla brottvísun stórs hóps hælisleitenda Þyki málið miður og til greina komi að breyta gönguleið „Þetta getur ekki verið svona aftur á næsta ári“ „Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“ Rafleiðni og vatnshæð aftur lækkandi í ánni Skálm Hinseginfáni skorinn niður í Hveragerði Krakkar beri ekki heldur virðingu fyrir eigin úlpum og Airpods Einn var stunginn í Breiðholti Gengur ekki að fólk sé að rústa húsum á Þjóðhátíð Dagskrá Hinsegin daga og bein útsending frá hátíðahöldum „Sjaldan hefur öðru eins stórgrýti verið kastað úr glerhýsi“ Vara við gasmengun við upptök Skálmar og Múlakvíslar Á bak og burt eftir að hafa brotið og bramlað í bústað Sjá meira