Innlent

Loðnuskipin ná góðum köstum í Faxaflóanum

Loðnuskipin eru nú dreifð um Faxaflóann og hafa þau náð góðum köstum vítt og breitt.

Ekki er alveg ljóst hvort ný ganga er komin inn á Flóann, en sjómenn leggja nú kapp á að veiða sem allra mest áður en loðnan hryggnir og drepst.

Enn er talsvert eftir af kvótanum, en tvívegis hefur verið bætt við hann frá upphafi vertíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×