Innlent

Skemmdi veggi með háhæla skóm

Háir hælar geta verið skæðir
Háir hælar geta verið skæðir Mynd úr safni
Lögreglan í Vestmannaeyjum þurfti að hafa afskipti af stúlku á átjánda ári sem olli skemmdum á einum af veitingastöðum bæjarins um helgina.

Stúlkan hafði látið reiði sína bitna á veggjum inni á salerni staðarins með þeim afleiðingum að göt komu á veggina, en stúlkan var í háhæla skóm og komu göt á veggina eftir hælana.

Nokkuð var um að lögreglan væri kölluð til á veitingastaði bæjarins vegna fólks sem var þar til vandræða vegna ölvunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×