Sink talið gott gegn flensu en læknir mælir þó ekki með því 22. febrúar 2011 12:26 Passa þarf að taka ekki of mikið af sinki við flensunni vegna mögulegra eitrunaráhrifa
Sink virðist geta dregið úr flensueinkennum og jafnvel gagnast sem lyf við kvefi. Þetta sýna nýjar og viðamiklar rannsóknir. Læknir á Íslandi varar fólk við því að taka inn of mikið sink þar sem aukaverkanir af því gætu orðið alvarlegar. Fjallað var um rannsóknina í vikunni læknavísindatímaritinu Cochrane Database of Systematic Reviews. Þar segir að mjög sé hægt að draga úr kvef- og flenskueinkennum ef byrjað er að taka sink inn sólarhring eftir að fólk kennir sér fyrst meins. Vilhjálmur Ari Arason læknir segir niðurstöðurnar áhugaverðar en minnir á að vísindamenn hafi ekki fundið út hver ráðlagður skammtur af sinki eigi að vera í þessu tilfelli. Því sé ekki hægt að mæla með inntöku þess við kvefi og flensu. „Þarna virðist vera komin vísbending um að efni eins og sink geti virkað en á móti kemur að sink er málmur. Það eru vel þekktar eitranir sem geta orðið af ofskömmtun á málum til dæmis af sinki," segir Vilhjálmur. Hann segir að í Bandaríkjunum hafi sink verið sett í nefsprey en vegna aukaverkanna hafi það verið tekið af markaði. "Í fjölda tilfella hefur fólk hefur misst lyktarskynið og það er mjög alvarleg aukaverkun að missa varanlega lyktarskyn vegna einfaldrar sýkingar, á borð við flensu og kvef, sem gengur til baka af sjálfu sér." Vilhjálmur segir mikilvægt að halda þessu til haga þar sem sumir eigi til að vera ögn ginkeyptir fyrir nýjungum. Hann vilji vara fólk við að stökkva ekki til og taka sink við kvefi þótt niðurstöður rannsóknanna séu mjög áhugaverðar. Málið þarfnist frekari rannsókna. „Sink er eitt af þessum snefilefnum sem við þurfum, rétt eins og kopar, og er nauðsynlegt líkamanum til margra hluta svo sem frumuskiptingu. Þannig það er bara eitt af þessum náttúrulegu efnum sem við þurfum en mikilvægt er að fólk geri sér grein fyrir því að við þurfum mjög lítið og við fáum yfirleitt nóg af því með fæðunni."
Mest lesið Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Innlent Tom Cruise seig og sveif og tók við fánanum fyrir hönd Los Angeles Erlent Vonir bundnar við „heilagan kaleik“ við sykursýki Erlent USS Abraham Lincoln skipað að flýta för sinni til Mið-Austurlanda Erlent Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Innlent Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Innlent „Fullorðna fólk, grow up!“ Innlent Djúp lægð fer yfir landið Veður Dró framboðið til baka til að forðast innanflokkserjur Erlent Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Innlent Fleiri fréttir Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús Matsferillinn sé svar við gagnrýni á samræmd próf Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Eigi að standa saman um fjárfestingu í jafnrétti til náms Allt svo snyrtilegt við höfnina í Vestmannaeyjum Löturhæg umferð inn í borgina Námsgögn verði einnig gjaldfrjáls í framhaldsskólum Þyrluflugmenn uggandi: „Klárt að þetta hefur neikvæð áhrif“ Þykir sárt að vera stunginn í bakið af vini sínum Treystir Útlendingastofnun fullkomlega Eldur í flugskýli í Múlakoti í nótt Fjölskyldur sendar úr landi og viðvörunarkerfi í Grindavík Enn gasmengun í lægðum en rafleiðni nálgast eðlileg gildi Sérsveitin kölluð til vegna manns sem skaut úr haglabyssu „Fullorðna fólk, grow up!“ Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Helgi Magnús ritar ráðherra bréf og Ásmundur Einar um menntakerfið Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Mótmæla brottvísun stórs hóps hælisleitenda Þyki málið miður og til greina komi að breyta gönguleið „Þetta getur ekki verið svona aftur á næsta ári“ „Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“ Rafleiðni og vatnshæð aftur lækkandi í ánni Skálm Hinseginfáni skorinn niður í Hveragerði Krakkar beri ekki heldur virðingu fyrir eigin úlpum og Airpods Einn var stunginn í Breiðholti Gengur ekki að fólk sé að rústa húsum á Þjóðhátíð Sjá meira