Rafbúnaður á Miðnesheiðinni slysagildra fyrir fjölskyldur Valur Grettisson skrifar 15. janúar 2011 10:10 Húsin eru með bandarískt rafmagnskerfi. „
Rafbúnaðurinn á Keflavíkurflugvelli er slysagildra fyrir fjölskyldur sem búa þar og sérstaklega fyrir rafiðnaðarmenn sem starfa við hann, þar sem nú eru tvö kerfi í gangi," segir í ályktun Rafiðnaðarsambandsins sem samþykkt var á fundi miðstjórnar og samninganefnda sambandsins í gær. Þar var fjallað um rafmagnsöryggismál á fyrrum varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Í ályktuninni kemur fram að sambandið áskilja sér þann rétt að beina kvörtunum til Eftirlitsstofnunnar EFTA (ESA) verði ekki ráðist tafarlaus í það verk að koma rafbúnaðinum í eðlilegt horf. Þegar varnarliðið fór af landi brott þá skildu þeir eftir sig bandarískt rafmagnskerfi. Þegar Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hóf uppbygginu á svæðinu voru sett bráðbirgðalög. Í þeim lögum var eigendum og forráðamönnum bygginga á svæðinu heimilt að nota raflagnir og rafföng í þáverandi ástandi til 1. október 2010. Rafiðnaðarsambandið var afar ósátt við lögin þá og að nú hafi ekkert verið að gert þar sem rafmagnskerfið er ekki í samræmi við íslenskar reglur á rafmagnsöryggisviði. Svo segir orðrétt í ályktuninni: „Þessu var harðlega mótmælt af hálfu Rafiðnaðarsambands Íslands, þarna var löggjafinn að íhlutast með óeðlilegum hætti í þágu eins aðila, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, á kostnað rafmagnsöryggis. Getur byggingaraðili vænt sömu meðferðar? Getur stór aðili eins og t.d. Landsvirkjun vænt sömu meðferðar ef reistar verða stórar vinnubúðir? Þessar reglugerðir eru reyndar ekki allar á valdi íslenskra stjórnvalda, þær eru samkvæmt EES stöðlum sem íslenskt stjórnvöld geta ekki breytt og þeim grundvelli stenst þessi aðgerð alls ekki skoðun með vísan í almennar meginreglur um jafnræði. Setning bráðabirgðalaganna árið 2007 var að mati Rafiðnaðarsambands Íslands brot á skuldbindingum Íslands skv. samningnum um EES, sbr. lög nr. 2/1993." Þá bendir sambandið á að fjölmargir rafiðnaðarmenn séu atvinnulausir, auk þess að fjölmargir hafa flutt af landi brott og fleiri eru að undirbúa flutning. Sambandið telur að það væri hægt að ná mjög góðum samningum í dag til þess að ljúka þessum málum og um leið bæta töluvert úr erfiðu atvinnuástandi á Suðurnesjum.Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.
Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Innlent „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Innlent Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Sjá meira