Hundurinn Skjöldur hvarf sporlaust 15. janúar 2011 07:00 Þetta er Skjöldur sem fyrrverandi eigandi hefur leitað að, en án árangurs. Síminn hjá Gunnari er 690-4000, hafi einhver séð Skjöld. „
Hræddastur er ég um að eitthvað slæmt hafi komið fyrir hundinn.“ Þetta segir Gunnar Ólafsson, sem leitar nú ákaft að hundinum Skildi, sem hann þurfti að láta frá sér. „Ég er öryrki og þurfti að flytja í íbúð í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu þar sem hundahald er bannað,“ útskýrir Gunnar. Hann sá þann kost vænstan að finna gott heimili fyrir hundinn og auglýsti hann því á Barnalandi og Hvuttar.net. „Nokkrir svöruðu auglýsingunni og fólkið mitt sá um að velja Skildi gott heimili. Sá sem varð fyrir valinu sagðist eiga husky-hund og væri búinn að ráða hundaþjálfara til að þjálfa þann hund og Skjöld.“ Loforð var gefið um að Gunnar fengi að hitta Skjöld öðru hvoru, enda sér hann sárlega eftir honum. „Ég ákvað að gefa þessu tíma þannig að hann gæti aðlagast nýju heimili áður en hann sæi mig aftur,“ segir Gunnar. En þegar til átti að taka fannst nýi eigandinn hvergi. Hann hafði gefið upp nafnið Ástþór, tvö símanúmer, bæði í heimasíma og farsíma, og kvaðst búa í Elliðaárdalnum. „Ég fór að reyna að hringja fyrir um það bil viku, en annað númerið var þá óvirkt og alltaf slökkt á hinum símanum,“ segir Gunnar. Þá kannast enginn hjá HRFÍ við nafnið sem maðurinn gaf upp og enginn hundaþjálfari sem Gunnar hefur rætt við segist hafa verið ráðinn til að þjálfa husky-hunda. Gunnar er hræddur um afdrif Skjaldar og vill jafnframt vara fólk við að láta dýr í hendur ókunnugra, nema að kynna sér hagi viðkomandi vel áður.- jss
Mest lesið Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Innlent Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Fleiri fréttir Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Sjá meira