Icelandair sakfellt fyrir samkeppnisbrot en sleppur við sekt 25. febrúar 2011 17:27 Icelandair.
Héraðsdómur staðfesti í dag þá niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála að Icelandair hafi verið í markaðsráðandi stöðu og misnotað hana með kynningu á svokölluðum Netsmellum á árinu 2004. Héraðsdómur taldi hins vegar brotin ekki eins alvarleg og lagt var til grundvallar í úrskurði áfrýjunarnefndar og felldi úr gildi sektarákvörðun áfrýjunarnefndar sem hljóðaði upp á 130 milljónir króna. Með framangreindum dómi kemst Héraðsdómur að sömu efnisniðurstöðu og í fyrri dómi frá 2. febrúar 2010, en Hæstiréttur ómerkti þann dóm þar sem of langur tími leið á milli aðalmeðferðar í málinu og dómsuppsögu. Fór því málflutningur fram að nýju. Samkeppniseftirlitið mun áfrýja dóminum til Hæstaréttar eins og hinum fyrri og m.a. láta reyna á réttmæti þess að fella niður sektir á Icelandair. Það var Í júní 2007 sem áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti ákvörðun Samkeppniseftirlitsins þess efnis að með kynningu og sölu á flugfargjöldum, svokölluðum Netsmellum að upphæð 16.900 kr., sem stóðu viðskiptavinum Icelandair ehf., til boða á árinu 2004 á flugleiðinni milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar annars vegar og á flugleiðinni milli Keflavíkur og London hins vegar, hafi félagið misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið gegn samkeppnislögum. Var Icelandair gert að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 130 milljónir króna í ríkissjóð. Icelandair skaut úrskurði áfrýjunarnefndar til dómstóla, sbr. umfjöllun hér að framan.
Mest lesið Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Innlent Tom Cruise seig og sveif og tók við fánanum fyrir hönd Los Angeles Erlent Vonir bundnar við „heilagan kaleik“ við sykursýki Erlent USS Abraham Lincoln skipað að flýta för sinni til Mið-Austurlanda Erlent Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Innlent Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Innlent „Fullorðna fólk, grow up!“ Innlent Djúp lægð fer yfir landið Veður Dró framboðið til baka til að forðast innanflokkserjur Erlent Miklir eldar í grennd við Aþenu Erlent Fleiri fréttir Drukkinn Íslendingur kýldi leigubílstjóra í Taílandi Bar við minnisleysi og sagði ekki um sama Pétur að ræða Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús Matsferillinn sé svar við gagnrýni á samræmd próf Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Eigi að standa saman um fjárfestingu í jafnrétti til náms Allt svo snyrtilegt við höfnina í Vestmannaeyjum Löturhæg umferð inn í borgina Námsgögn verði einnig gjaldfrjáls í framhaldsskólum Þyrluflugmenn uggandi: „Klárt að þetta hefur neikvæð áhrif“ Þykir sárt að vera stunginn í bakið af vini sínum Treystir Útlendingastofnun fullkomlega Eldur í flugskýli í Múlakoti í nótt Fjölskyldur sendar úr landi og viðvörunarkerfi í Grindavík Enn gasmengun í lægðum en rafleiðni nálgast eðlileg gildi Sérsveitin kölluð til vegna manns sem skaut úr haglabyssu „Fullorðna fólk, grow up!“ Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Helgi Magnús ritar ráðherra bréf og Ásmundur Einar um menntakerfið Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Mótmæla brottvísun stórs hóps hælisleitenda Þyki málið miður og til greina komi að breyta gönguleið „Þetta getur ekki verið svona aftur á næsta ári“ „Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“ Rafleiðni og vatnshæð aftur lækkandi í ánni Skálm Hinseginfáni skorinn niður í Hveragerði Krakkar beri ekki heldur virðingu fyrir eigin úlpum og Airpods Sjá meira