Innlent

WikiLeaks birtir sendiráðsskjölin á vefnum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
WikiLeaks hefur birt á eigin vef trúnaðarskjöl úr bandarískum sendiráðum. Það var ekki hægt í lok síðasta árs en þá sætti síðan stanslausum árásum. Skjölin ullu miklu fjaðrafoki þegar að þau voru birt í öllum helstu fjölmiðlum heims. Fréttablaðið og Vísir sögðu ítarlega frá efni skjala úr sendiráðinu á Íslandi, en þar kom meðal annars fram að bandarísk stjórnvöld hefðu óskað eftir því að Ísland tæki við föngum úr Guantanamofangabúðunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×