Innlent

Fimm handteknir fyrir fíkniefnaneyslu

Tvö útköll vegna hávaða í heimahúsum í Þingholtunum seint í nótt, snérust upp í það að tveir voru handteknir í öðru húsinu, vegna fíkniefnaneyslu, og þrír í hinu, vegna þess sama.

Það eru því fimm í haldi vegna þessara mála, sem eru í frum rannsókn, sem gætu leitt til húsleita í dag. Lítilsháttar af fíkniefnum fundust hinsvegar á hinum handteknu í nótt. Í báðum tilvikum hafði fólk meðal annars neytt kannabisefna, og fundu lögreglumenn strax lyktina, þegar þeir komu á vettvang.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×