Innlent

Vaxandi líkur á verkfalli í fiskimjölsverksmiðjum

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. MYND/Óskar P. Friðriksson

Félagsfundur í verkalýðsfélaginu Drífandi í Vestmannaeyjum samþykkti í gærkvöldi að atkvæðagreiðsla skuli fara fram í félaginu um verkfallsboðun félagsmanna, sem starfa í fikimjölsverksmiðjum. Í fyrrakvöld hafði Afl- starfsgreinafélag á Austfjörðum samþykkt hið sama.

Það eru því vaxandi líkur á að boðað verði til verkfalls í samtals sex fiskimjölsverksmiðjum innan tíðar. Samtök atvinnulífsins telur þetta ólöglegar aðgerðir og munu líklega vísa málinu til Félagsdóms.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×