Innlent

Margir ökumenn treysta sér ekki lengra á Hellisheiði

Mynd úr safni
Mynd úr safni
Vörubíll fór á hliðina í Kömbunum fyrir stundu. Þá eru tveir aðrir vörubílar fastir en mikið vonskuveður er á svæðinu þessa stundina. Ökumaður vörubílsins slasaðist ekki.

Björgunarsveitin í Hveragerði er komin á svæðið og samkvæmt upplýsingum þaðan eru margir fólksbílar fastir á Hellisheiðinni. Mikil hálka er á svæðinu og margir ökumenn hafa lent í vandræðum.

Vegfarandi sem hafði samband við fréttastofu sagði að miklir skaflar væru á Hellisheiðinni og þá væri rosalega blint skyggni. Margir bílar eru komnir út í kant og treysta sér ekki lengra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×