Innlent

Vegtollum mótmælt: Ögmundur fær 41 þúsund undirskriftir

Forsvarsmenn FÍB, félags íslenskra bifreiðaeigenda, munu hitta Ögmund Jónasson innanríkisráðherra klukkan eitt í dag til að afhenda honum mótmæli 41.000 kosningabærra Íslendinga gegn fyrirhuguðum vegatollum.

Undirskriftalistanum var safnað saman á einni viku á vefsíðu FÍB.

Að afhendingu lokinni mun FÍB eiga fund með ráðherranum til að kynna honum þær lausnir sem félagið telur affarasælli í stöðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×