Innlent

Kona handtekin grunuð um íkveikju

Grunur leikur á að kona, sem býr í stóru fjölbýlishúsi við Norðurbakka í Hafnarfirði, hafi kveikt í íbúð sinni seint í gærkvöldi. Hún hringdi í slökkviliðið, en reyndi svo að afturkalla það, en lögregla taldi rétt að fara in í íbúðina.

Þá logaði talsverður eldur í stofunni og var hann slökktur. Konan var handtekinn og verður yfirheyrð í dag, grunuð um að hafa stofnað lífi og limum nágranna sinna í hættu. Verulegar skemmdir urðu á íbúðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×