Kvennakórinn Vox feminae fékk hæsta styrkinn 14. janúar 2011 22:27 Úthlutunin fór fram í Iðnó í dag.
Menningarsjóður Hlaðvarpans úthlutaði rúmlega 10 milljónum króna til menningarmála kvenna í dag en úthlutunin fór fram í Iðnó. Í þessari fjórðu úthlutun úr sjóðnum voru veittir 19 styrkir en alls bárust yfir 70 umsóknir. Við úthlutun var þess gætt að styrkirnir nýttust sem flestum konum og haft var í huga að sem flest svið menningar njóti stuðnings, líkt og það er orðað í tilkynningu. Hæsta styrkinn í ár hlaut Kvennakórinn Vox feminae, eina milljón krónur. Vox feminae hlýtur styrkinn til að fela Báru Grímsdóttur tónskáldi að semja hátíðamessu fyrir kvennakór og til að flytja messuna, hljóðrita hana og gefa út á geisladisk. Aðrar konur og verkefni sem styrki hlutu eru: • Alma Joensen og Lovísa Arnardóttir fengu styrk til að setja á laggirnar vefsíðu með fréttum úr heimi femínisma og kynjafræða. • Anna Þorvaldsdóttir tónskáld hlaut styrk til að gefa út geisladisk með tónverkum sínum. • Annað svið fékk styrk til verkefnisins Guðný, Agnes, Rósa - þó látin sé ástin. • Bókasafn Dalvíkurbyggðar fékk styrk til að halda málþing og sýningu um Hugrúnu, öðru nafni Filippíu Kristjánsdóttur. • Bryndís Björgvinsdóttir hlaut styrk til verkefnisins Íslenskt samfélag í spegli hversdagsins. • Elísabet Brynhildardóttir, Lára Kristín Kristinsdóttir, Selma Hreggviðsdóttir, Perla Dagbjartar Hreggviðsdóttir, Ásta Briem, Lilja Birgisdóttir, Ragnhildur Jóhanns og Þórgunnur Oddsdóttir hlutu styrk til að gefa út tímarit um samtímalist íslenskra kvenna. • Eva Björk Kaaber, Eva Rún Snorradóttir, Arnþrúður Ingólfsdóttir, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Íris Ellenberger og Björg Sveinbjörnsdóttir fengu styrk til verkefnisins Skyndilega greip mig óstjórnleg löngun. • Hrund Gunnsteinsdóttir, Soffía Guðrún K. Jóhannsdóttir og Hildigunnur Sverrisdóttir fengu styrk til verkefnisins Hverra mamma ert þú? • Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir hlaut styrk til að vinna að verkefninu Sérherbergi. • Jórukórinn á Selfossi hlaut styrk til að halda Landsmót íslenskra kvennakóra 2011. • Kristín Bergþóra Pálsdóttir hlaut styrk til að vinna að heimildamyndinni Brautryðjandinn sem fjallar um Auði Auðuns. • Kung Fu Films ehf., Helga Rakel Rafnsdóttir og Yrsa Roca Fannberg hlutu styrk til heimildamyndarinnar Mamma Salóme. • Kvennanefnd Verkfræðingafélags Íslands hlaut styrk til að vinna að verkefninu Þær brutu blað: . Um konur í verkfræði. • Laufey Sigurðardóttir og Elísabet Waage hlutu styrk til að vinna að verkefninu 4 plús 47 • Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir fékk styrk til verkefnisins Hún samdi ljóð, ég samdi lag. • Nýlistasafnið hlaut styrk til að vinna að verkefninu Listamannarekin sýningarrými á Íslandi - kvennarými. • Stella, bókaútgáfa hlaut styrk til að vinna að verkefninu Þrjár sögur af vinskap Marilynar Monroe og Gretu Garbo. • STERK - gegn mansali hlaut styrk til að vinna að verkefninu Ég hugsaði um það þegar ég var yngri en lét aldrei verða af því. „Verkefnin sem styrk hlutu eru til marks um frjótt og fjölbreytt menningarstarf kvenna á Íslandi og þau sýna jafnframt óbilandi frumkvæði og atorku kvenna," segir í tilkynningu frá sjóðnum. Úthlutunarnefnd menningarsjóðs Hlaðvarpans skipa: Drífa Snædal, Ragnhildur Richter, Guðrún Erla Geirsdóttir, Hildur Fjóla Antonsdóttir, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Hrefna Haraldsdóttir.
Mest lesið Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Innlent Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Innlent Fleiri fréttir Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Sjá meira