„Jeppagengjanna“ var sárt saknað 14. janúar 2011 05:45 Íslensku friðargæsluliðarnir báru vopn sér til varnar og þóttu mörgum skilin milli starfa þeirra og hermanna óljós.
Sendiráð Bandaríkjanna í Kabúl sendi langt minnisblað í Hvíta húsið, til CIA og æðstu herstjórnar, til að reyna að koma í veg fyrir brotthvarf íslensku „jeppagengjanna“ frá Afganistan. Íslendingarnir hlaðnir lofi fyrir sín störf. Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, æðsta herstjórn Bandaríkjahers, CIA og sendiráð Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum voru meðal viðtakenda tveggja blaðsíðna minnisblaðs sem bandaríska sendiráðið í Kabúl skrifaði í desember 2006 til þess að hvetja bandarísk stjórnvöld til að þrýsta á íslensk yfirvöld um að hætta við að kalla „jeppagengi“ íslenskra friðargæsluliða heim frá Afganistan. Um var að ræða tvo fimm manna hópa lögreglumanna, sjúkraflutningamanna, sérþjálfaðra bílstjóra og vélvirkja. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra ákvað í október 2006, mánuði eftir að Bandaríkjamenn lokuðu formlega herstöð sinni á Keflavíkurflugvelli, að kalla sveitina heim í febrúar 2007. Um leið var tilkynnt að íslensk friðargæsla myndi framvegis sinna borgaralegum verkefnum og voru hjúkrunarfræðingar og ljósmóðir send til Afganistan í stað „jeppagengjanna“. Mikill pólitískur stuðningur kom fram hér á landi við þessa stefnubreytingu. Fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokka fögnuðu henni. Það kveður við annan tón í minnisblaðinu frá sendiráði Bandaríkjamanna í Kabúl. Þar segir að áform íslenskra stjórnvalda valdi þungum áhyggjum og varað við „alvarlegum afleiðingum“ þessara breytinga fyrir herliðið í Ghor-héraði. Utanríkisráðuneytið í Washington er hvatt til að þrýsta á íslensk stjórnvöld að þau endurskoði ákvörðunina. „Vegna samsetningar sinnar, sérstaks tækjabúnaðar og mikillar reynslu af torfæruakstri við aðstæður eins og þær sem ríkja í Ghor-héraði hafa eftirlitssveitir Íslendinganna skilað miklum árangri,“ segir í minnisblaðinu. „Vegna áreiðanleika sveitarinnar, viðleitni hennar til þess að miðla hæfni sinni til annarra sveita og einstakrar hæfni til björgunarstarfa er starf endurreisnarsveitarinnar í Chaghcharan mun skilvirkara en ella.“ Fullyrt er að Íslendingar einir séu vanir akstri á landsvæði líkt og í Ghor-héraði. Hæfni þeirra við að nýta GPS-staðsetningartækni sé einstök og geri þeim kleift að sinna eftirlits- og björgunarstörfum að nóttu sem degi. Hins vegar séu íslensku friðargæsluliðarnir sjálfir vonsviknir vegna þess að störf þeirra njóti lítils stuðnings frá íslenskum stjórnvöldum og almenningi.
Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Innlent „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Innlent Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Sjá meira