Innlent

Lýst eftir hugsanlegu vitni á dökkleitum bíl

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð í Borgartúni í Reykjavík um sexleytið í gærkvöld.

Ekið var á gangandi vegfaranda á fyrrnefndum stað á móts við Vínbúðina en ökumaðurinn fór strax af vettvangi án þess að skeyta um hinn slasaða.

Talið er að dökkleitum bíl hafi verið ekið á eftir þeim sem olli slysinu og að ökumaður hans kunni að hafa orðið vitni að slysinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×