Verður að taka mótmælin alvarlega 14. janúar 2011 05:00 Fulltrúar FÍB afhentu Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra undirskriftirnar á stafrænu formi á litlum minnislykli í innanríkisráðuneytinu í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Alls settu 41.524 einstaklingar nafn sitt við undirskriftasöfnun Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) þar sem vegtollum var mótmælt. Nafnalistinn var afhentur Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra í gær. „Skilaboðin eru mjög skýr, krafan er sú að það verði ekki teknir upp vegtollar,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, eftir fund forsvarsmanna félagsins með Ögmundi. „Að sjálfsögðu tökum við alvarlega þegar rúmlega 40 þúsund undirskriftir safnast á nokkrum dögum,“ sagði Ögmundur í samtali við Fréttablaðið eftir fundinn. Hann benti þó á að menn verði að vera samkvæmir sjálfum sér. Tilgangurinn með vegtollum hafi verið sá að geta flýtt mikilvægum framkvæmdum, skapað störf og aukið öryggi vega. Ríkiskassinn sé tómur og þess vegna hafi verið áhugi á því að leita annarra leiða til að fá fé til framkvæmda. „Nú er ég ekki maður vegtolla, en ég er maður flýtimeðferðar í vegamálum,“ segir Ögmundur. Í kjölfar óánægju verði að ræða þessi mál upp á nýtt. Alls skrifuðu 41.524 nöfn sín með rafrænum hætti á undirskriftalista FÍB. Af þeim voru 40.787 á kosningaaldri, eða um 17,9 prósent af kosningabæru fólki í landinu. Runólfur segir að farið hafi verið yfir hugmyndir FÍB um að leggja 2+1 veg í stað þess að tvöfalda Suðurlandsveginn til að spara fé og flýta framkvæmdum. Hann segir úrbætur á Suðurlandsveginum mikilvægasta verkefnið til að auka öryggi fólks í umferðinni, en aðrar framkvæmdir séu einnig aðkallandi.- bj
Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Innlent „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Innlent Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Sjá meira