Ódýrast að fljúga Vestur um haf með Delta í sumar 16. janúar 2011 13:30 New York.
Flugfélagið Delta, sem mun hefja flug til Íslands frá Bandaríkjunum í sumar, mun bjóða upp á ódýrustu flugin til New York frá Keflavíkurflugvelli fyrri hluta sumarsins. Þetta kemur fram í verðkönnun sem heimasíðan Túristi.is vann. Þann fyrsta júní hefst áætlunarflug bandaríska félagsins Delta milli New York og Keflavíkur. Upphaflega stóð til að fljúga daglega en þeim áformum var breytt í nóvember og niðurstaðan er fimm flug í viku. Delta verður þriðji valkosturinn sem Íslendingar hafa til að ferðast til austurstrandar Bandaríkjanna en Iceland Express hóf flug þangað síðasta sumar. New York hefur verið hluti að leiðarkerfi Icelandair í tugi ára. Sparnaðurinn verður hinsvegar aldrei minni en tíu þúsund krónur. Þegar verð félaganna þriggja er skoðað kemur í ljós að það bandaríska býður töluvert lægri verð en þau íslensku frá byrjun júní og fram í miðan júlí. Helgarferð með Delta (fimmtudagur til sunnudags) kostar 53.470 krónur á þessu tímabili sem er að minnsta kosti sex þúsund krónum ódýrara en lægsta verð Iceland Express, 59.740 krónur. Verðmunurinn er ennþá meiri þegar vikuferðalag, sem byrjar og endar á föstudegi, er pantað. Þá er munurinn ekki minni en rúmlega tíu þúsund krónur. Ódýrasti miðinn hjá Delta kostar þá líka 53.370 krónur en 64.320 hjá Icelandair sem er næst ódýrast. Frá miðjum júlí hækkar verðið hins vegar hratt hjá Delta og Iceland Express verður ódýrast. Túristi bar aðeins saman dagsetningar þar sem öll þrjú félögin fljúga en bandaríska félagið fer ekki frá Keflavík þriðjudaga og miðvikudaga. Séu aðrar samsetningar daga prófaðar geta verðið verið allt önnur. Dýrasta helgarferð sumarsins (fimmtudagur til sunnudags) er með Delta þann 28. til 31. júlí. Hún kostar þá 139.579 kr. sem er næstum tvöfalt hærra verð en greiða þarf hjá Iceland Express þessa sömu helgi eða 72.200 kr. Icelandair var aldrei með lægsta verðið í könnun Túrista en hafa ber í huga að félagið er það eina sem býður upp á fleiri en eitt flug á dag og um leið frían aðgang að afþreyingarkerfi sínu. Hjá hinum þarf að greiða sérstaklega fyrir þess háttar þjónustu. Léttar veitingar eru jafnframt seldar hjá Iceland Express en eru fríar hjá hinum.
Mest lesið Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Innlent „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Innlent Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu Innlent Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Innlent Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Erlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Fleiri fréttir Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Sjá meira