Innlent

Tveir innbrotsþjófar handteknir

Í gærkvöld handtók lögreglan innbrotsþjóf sem hafði brotist inn í íbúðarhús í austurborginni en nágranni gerði lögreglu viðvart um grunsamlegar mannaferðir í húsinu. Lögreglan lagði hald á muni sem fundust í fórum þess sem var handtekinn og eru taldir vera þýfi.

Innbrot var svo framið laust fyrir klukkan hálf sjö í morgun í austurborginni en húsráðandi vaknaði við mannaferðir í íbúðinni. Þegar húsráðandi fór að athuga hverskyns væri þá var þjófurinn í óða önn að taka til muni sem hann ætlaði að stela. Húsráðandinn kallaði lögreglu til sem kom og handtók þjófinn. Hann verður yfirheyrður í dag vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×