Innlent

Lára hlýtur Rósina í ár

Lára Björnsdóttir
Lára Björnsdóttir

Lára Björnsdóttir, fyrrverandi félagsmálastjóri Reykjavíkur og framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, hlaut á dögunum Rósina. Um er að ræða árleg verðlaun sem eru veitt í minningu Ástu B. Þorsteinsdóttur fyrir störf í þágu fatlaðra.

Í greinargerð segir að áhugi Láru á velferð fatlaðs fólks og virðing fyrir einstaklingnum og ákvörðunarrétti hans hafi fylgt henni alla tíð. Hún hafi sýnt af sér mikinn eldmóð og telst því verðugur handhafi Rósarinnar.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×