Innlent

Leitað að ökumanni sem ók á mann og stakk svo af

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn ökumanns, sem ók á gangandi vegfaranda í Borgartúni á sjöunda tímanum í gærkvöldi, og stakk af.

Vegfarandinn, karlmaður miðjum aldri, lá þá eftir í götunni. Hann var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans, sem reyndust ekki alvarleg.

Lögregla lokaði götunni um stund, á meðan rannsókn var gerð á vettvangi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×