Charlie Sheen er lítið barn 22. mars 2011 08:00 Martin Sheen átti sjálfur í vandræðum með geðheilsuna, áfengið og eiturlyfin. Hann segir að sonur sinn, Charlie Sheen, hafi þroska á við lítið barn og að hann þurfi að vera hugrakkur til horfast í augu við sjálfan sig. Nordic Photos/Getty
Charlie Sheen er vafalítið aðalstjarnan það sem af er þessa árs en sífellt fleiri efast um geðheilbrigði leikarans. Bæði bróðir og faðir leikarans tjáðu sig um ástandið á honum um helgina. Charlie Sheen hefur ákveðið að ferðast um allar helstu borgir Bandaríkjanna og Kanada með sýninguna My Violent Torpedo of Truth sem myndi útleggjast á íslensku Ofbeldisfullur hvirfilbylur sannleikans. Sheen hefur verið stöðugt í fréttum á árinu vegna ofneyslu áfengis og eiturlyfja, undarlegs sambands síns við klámstjörnur og nú síðast vegna heimsmets sem hann setti á Twitter. Búið er að reka hann úr sjónvarpsþáttunum Two and a half men en hann var launahæsti leikarinn í bandarísku sjónvarpi fyrir þá þætti. Faðir Charlie er stórleikarinn Martin Sheen en hann mætti í viðtal við The Daily Telegraph sem birt var um helgina ásamt hinum syninum, Emilio Esteves. Martin og Charlie léku saman í Wall Street á níunda áratug síðustu aldar og sá gamli átti í erfiðleikum með áfengið og eiturlyfin eins og sonurinn á nú. Í viðtalinu við Daily Telegraph segir Martin að sonur sinn hafi þroska á við barn. „Þegar þú ert fíkill þá þroskast þú ekki neitt. Þegar þú ert búinn að fara í meðferð og hættur öllu sukki þá byrjar þú upp á nýtt," hefur Telegraph eftir pabbanum. Sjálfur fékk hann hjartaáfall við tökur á Apocalypse Now eftir Francis Ford Coppola eftir mikla neyslu og segir í viðtalinu að hann hafi upplifað ámóta geðveiki og sonur hans. „Það var fyrir framan tökuvélarnar þegar við vorum að taka upp upphafsatriðið á Apocalypse Now. Ég veit alveg hvað Charlie er að ganga í gegnum." Martin er hins vegar sannfærður um að það sé ljós við enda gangsins en viðurkennir að sonur sinn sé í erfiðri stöðu. „Hann verður að vera hugrakkur, það þarf hugrekki til að horfast í augu við sjálfan sig," freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Á lífi þökk sé þrjóskum engli Lífið Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Menning Fréttatía vikunnar: Ólympíuleikar, erlend ódæði og rafhlaupahjól Lífið Kominn í pásu frá sterunum Lífið Þurfti að berjast við krabbamein í stríðshrjáðu landi Lífið Sást með huldumanni Lífið Rapparinn Travis Scott handtekinn í París Lífið Mun gráta þegar nýr eigandi fær lyklana í hendurnar Lífið Óvinsæll í vinahópnum Lífið Heitur pottur sem á sér engan líkan hér á landi Lífið Fleiri fréttir Þurfti að berjast við krabbamein í stríðshrjáðu landi Á lífi þökk sé þrjóskum engli Fréttatía vikunnar: Ólympíuleikar, erlend ódæði og rafhlaupahjól Rapparinn Travis Scott handtekinn í París Sást með huldumanni Óvinsæll í vinahópnum Mælir með að muna eftir sólarvörn og gleðinni í göngunni Kominn í pásu frá sterunum Mun gráta þegar nýr eigandi fær lyklana í hendurnar Alltaf að tala um barneignir „Hatrið má ekki sigra“ Stjörnurnar streyma á Sólheima Datt niður stiga fyrir framan samstarfsfélagana Mannmergð í Vín: Swift tónleikunum en ekki söngröddinni Frægasti skúrkur Ástralíu allur Biskupsbústaðurinn kominn á sölu Heitur pottur sem á sér engan líkan hér á landi „Þannig að við erum ekki gift“ Þekkir sjúkdóminn sem dró barnabarnið til dauða af eigin raun Aðkomumaður ráfaði inn í hús á Þjóðhátíð og lýsti eftir húsráðanda Myndaveisla: Loksins lét sú gula sjá sig Rússnesk lög í karókí eru eitthvað annað skemmtileg Ari Ólafs tekur stórt stökk: „Þetta er draumur að rætast“ Myndaveisla: Playboy lopapeysa og drulluskítugir regnjakkar Segir föður sínum til syndanna Upplifir sig niðurlægða Varanlegur regnbogafáni við Barónstíg Neyðarlegast þegar fólk heldur að hún sé tvíburi sinn Heimsmeistari eftir að hafa næstum misst af mótinu Konur á bakvið glansmyndina sem líður alveg ofsalega illa Sjá meira