Innlent

Brjálað veður undir Eyjafjöllum

Brjálað veður er nú undir Eyjafjöllum, vestan við Skóga, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Björgunarsveitin á Vík aðstoðaði erlendan ferðamann fyrir stundu en sá treysti sér ekki til að keyra lengra vegna veðursins. Þá eru fjölmargir ökumenn í vanda.

Snjóbylur er á svæðinu, sem og sand og grjótfok. Lögreglan á Hvolsvelli vill koma þeim upplýsingum til fólks, sem eiga leið um svæðið, að vera frekar heima og hinkra á meðan veðrið gengur yfir. Ekkert ferðaveður er á svæðinu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×