Innlent

Höfðu enga trú á Rússaláni til Íslands

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eric Rubin staðgengill sendiherra í sendiráði Bandaríkjanna í Rússlandi hafði enga trú á því að Rússar gætu lánað Íslendingum. Mynd/ afp.
Eric Rubin staðgengill sendiherra í sendiráði Bandaríkjanna í Rússlandi hafði enga trú á því að Rússar gætu lánað Íslendingum. Mynd/ afp.
Sendiráð Bandaríkjanna í Rússlandi hafði enga trú á því að Rússar hefðu tök á því að veita Íslendingum gjaldeyrislán.

„Efnahagskreppan hefur skollið af hörku á Rússlandi og Rússar eru farnir að finna fyrir afleiðingunum. Lánið til Íslands bendir til þess að ríkisstjórnin í Rússlandi sé ekki farin að sætta sig við þetta," segir Eric Rubin, staðgengill sendiherra í sendiráði Bandaríkjanna í Rússlandi.

Haustið 2008, um það leyti sem efnahagsfárviðrið var að skella á Íslandi, þurftu Íslendingar sárlega á erlendu láni að halda til að efla gjaldeyrisvaraforða sinn. Eftir að Bandaríkjamenn og Norðurlöndin neituðu Íslendingum um slíkt lán var ákveðið að leita til Rússa en aldrei kom til þess að samið yrði um lánið.

Upplýsingar um þessa skoðun Rubins birtist í WikiLeaksskjölunum sem nú hafa verið birt á vef WikiLeaks. Til stóð að birta skjölin seint á síðasta ári, en það tókst ekki vegna stanslausra árása á síðuna.




Tengdar fréttir

WikiLeaks birtir sendiráðsskjölin á vefnum

WikiLeaks hefur birt á eigin vef trúnaðarskjöl úr bandarískum sendiráðum á vef sínum. Það var ekki hægt í lok síðasta árs en þá sætti síðan stanslausum árásum. Skjölin ullu miklu fjaðrafoki þegar að þau voru birt í öllum helstu fjölmiðlum heims. Fréttablaðið og Vísir sögðu ítarlega frá efni skjala úr sendiráðinu á Íslandi, en þar kom meðal annars fram að bandarísk stjórnvöld hefðu óskað eftir því að Ísland tæki við föngum úr Guantanamofangabúðunum.

Íslensk stjórnvöld mígleka

Á Íslandi er upplýsingaleki í fjölmiðla dagleg iðja, sagði Nicole Bollen, sem sér um skuldamál fyrir hollenska fjármálaráðuneytið, í samtali við bandaríska sendiráðið í Hollandi. Þetta kemur fram í WikiLeaksskjölum. Skjöl frá Wikileaks úr bandarískum sendiráðum víðsvegar um heim, sem birt voru í helstu fjölmiðlum heims í lok síðasta árs, hafa nú verið birt á WikiLeakssíðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×