Innlent

Mikið um sjúkraflutninga í nótt

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Mikið var um sjúkraflutninga í nótt en alls fóru sjúkraflutningamenn í 33 útköll.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að nýbyggingu í Mosfellsbæ um klukkan hálf eitt í nótt en þar hafði hitavatnsleiðsla sprungið. Einhverjar skemmdir urðu á húsinu að sögn slökkviliðsins en húsið var mannlaust.

Þá var tilkynnt um sinubruna við Tröllateig í Mosfellsbæ en þegar slökkvilið kom á staðinn var búið að slökkva eldinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×