Innlent

Bíræfinn þjófur stal kerru um hábjartan dag

Bíræfinn þjófur stal kerru aftan af bifreið um hádegisbilið í gær. Samkvæmt lögreglunni var maður að versla í Húsasmiðjunni við Vínlandsleið í Grafarholtinu þegar óprúttinn þjófur lét til skara skríða.

Þjófurinn á að hafa verið á gráum Patrol jeppa þegar hann leggur við hlið bílsins með kerruna, sem er brún að lit og yfirbyggð. Svo aftengir þjófurinn kerruna af bílnum og tengir við sína bifreið. Í kjölfarið ekur hann í burtu. Þjófnaðurinn tók örskamma stund.

Þjófnaðurinn náðist á öryggismyndavél en þjófsins er leitað. Hafi einhver upplýsingar um atvikið er hinum sama bent á að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×