Innlent

„Við sluppum vel í þetta sinn“

„Við sluppum vel í þetta sinn" segir móðir fjórtán mánaða stúlku sem hlaut annars stigs bruna á líkamanum þegar hún hellti yfir sig sjóðandi vatni um síðustu helgi. Stúlkan dvelur enn á Barnaspítala Hringsins.

Rakel Dís er heldur hávaxin miðað við 14 mánaða aldur og sterkleg að sjá. Því var kannski ekki erfitt fyrir hana að teygja sig í pottinn af eldavélinni síðastliðinn laugardag.

„Við vorum að sjóða egg og hún skvetti yfir sig sjóðandi vatni," segir Helga Guðrún Ásgeirsdóttir, móðir Rakelar Dísar.

Rakel var keyrð í bæinn en hún er búsett í Þorlákshöfn. Þá var búið að kæla hana með köldu vatni og setja á hana brunagel. Betur fór en áhorfðist í fyrstu en hún hlaut engu að síður annars stigs bruna og brann illa á bringunni og öðrum handleggnum.

Helga telur að Rakel muni ekki hljóta varanleg ör. „Lýtalæknirinn telur að hún eigi ekki eftir að fá ör en það er erfitt að segja til um það. Það mun taka húðina góðan tíma að jafna sig. Hann talaði að um það gæti tekið sex mánuði þar til húðin fer að líta eðlilega út."

Herdís Storgaard, hjá forvarnarhúsi Sjóvár, segir slys af þessu tagi vera algengust hjá börnum milli eins og tveggja árs. Um það bil 17 börn eru lögð inn á ári vegna bruna og í helmings tilvika eru þeir af völdum vatns. Hún ráðleggur fólki að nota innri hellurnar á eldavélinni eða fjárfesta í grind sem hægt er að setja fyrir framan pottana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×