Innlent

Fjórum skemmtistöðum lokað á tveimur dögum

Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni með beinum hætti.
Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni með beinum hætti.

Tveimur skemmtistöðum var lokað í nótt í miðborginni þar sem fjöldi gesta var langt umfram það sem þeir hafa samkvæmt útgefnum leyfum.

Alls eru skemmtistaðirnir sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokar því orðnir fjórir. Á föstudagskvöldinu lokaði lögreglan einnig tveimur skemmtistöðum. Þá vegna þess að of margir voru inni á stöðunum auk þess sem ungmenni yngri sextán ára voru innandyra að skemmta sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×