Innlent

Bílvelta nærri Korputorgi

Einn maður var fluttur á slysadeild.
Einn maður var fluttur á slysadeild.

Bílvelta varð á Vesturlandsvegi við Korputorg nærri Grafarholtinu um hádegisbilið. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn var fluttur á slysadeild. Ekki er vitað hvort hann hafi verið mjög slasaður.

Það er launhált á höfuðborgarsvæðinu auk þess sem lögreglan á Suðurnesjum hefur varað vegfarendur við sem aka Reykjanesbrautina vegna hálku.

Vegurinn er lokaður til suðurs samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×