Innlent

Varað við ísingu á Reykjanesbrautinni

Áreksturinn í gær var mjög harður og þurfti að klippa ökumann út.
Áreksturinn í gær var mjög harður og þurfti að klippa ökumann út.

Lögreglan á Suðurnesjum varar við ísingu á Reykjanesbrautinni. Tvö umferðarslys urðu á Reykjanesbrautinni í Kúagerði í gær með stuttu millibili. Tíu voru fluttir á sjúkrahús, þar af einn alvarlega slasaður, en ekki hafa fengist upplýsingar um líðan fólksins.

Vegagerðin vinnur að því að salta Reykjanesbrautina. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum þá er áreksturinn til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×