Innlent

Tveir menn í haldi - fórnarlamb úr lífshættu

Andri Ólafsson skrifar
Lögreglustöðin á Hverfisgötunni.
Lögreglustöðin á Hverfisgötunni.

Karlmaður, sem ráðist var á í nótt fyrir utan skemmtistaðinn Players í Kópavogi, er úr lífshættu. Tveir menn eru í haldi lögreglu grunaðir um árásina.

Alvarleg líkamsárás var framin við skemmtistaðinn Players í Kópavogi um klukkan þrjú í nótt. Ráðist var á karlmann og þegar hann féll í götuna var sparkað í höfuð hans samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þolandinn var fluttur á gjörgæsludeild Landspítalans með alvarlega höfuðáverka og var um tíma talinn í lífshættu. Lögregla handtók einn mann á vettvangi og annan skömmu síðar eftir ábendingar vitna. Þeir eru nú báðir í haldi lögreglu og verða yfirheyrðir í dag.

Þolandinn er ekki lengur í lífshættu og hefur ástand hans batnað töluvert síðustu klukkutíma. Hann verður jafnvel útskrifaður af sjúkrahúsi í kvöld eða á morgun.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×