Sex vinir Sjonna syngja Eurovision-lagið 26. janúar 2011 00:01 Fjórir úr Waterslide-hópnum snúa aftur á laugardaginn og flytja lag Sigurjóns Brink, Aftur heim. „
Þessi nöfn eru staðfest og munu syngja lagið hans Sjonna," segir Jóhanna Jóhannsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. Sex vinir Sjonna Brink munu flytja lagið hans Aftur heim sem lagasmiðurinn og söngvarinn samdi fyrir Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár. Þetta eru þeir Hreimur Örn Heimisson, Gunnar Ólason, Benedikt Brynleifsson, Vignir Snær, Matthías Matthíasson og Pálmi Sigurhjartarson. Lagið verður flutt síðast á laugardaginn. Fjórir af þessum tónlistarmönnum sungu lagið Waterslide með Sigurjóni í síðustu söngvakeppni; þeir Vignir Snær, Hreimur Örn, Gunnar og Benedikt. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum varð Sigurjón Brink bráðkvaddur á heimili sínu á mánudag í síðustu viku. Hann samdi lagið en eiginkona hans, Þórunn Erna Clausen, á heiðurinn af textanum. Fjögur lög eru þegar komin áfram í söngvakeppni Sjónvarpsins en á laugardaginn voru það Eldfjall og Nótt sem komust áfram. Áður höfðu Ástin mín eina og Ef ég hefði vængi þegar tryggt sér sæti í úrslitum keppninnar um hvaða lag verður framlag Íslands til Eurovision. Meðal annarra flytjenda á laugardaginn má nefna Jógvan Hansen og Magna Ásgeirsson en hann syngur lag Hallgríms Óskarssonar, Ég trúi á betra líf. -fgg
Mest lesið Sigmundur yrði líklega skutlaður af Kristjáni Loftssyni Lífið Sól meðal tískuhönnuða erlendis sem vert er að fylgjast með Tíska og hönnun Pissaði á sig í mátunarklefa Lífið Karin í Nola keypti 200 fermetra einbýlishús á Seltjarnarnesi Lífið Sonur Benedikts og Evu kominn með nafn Lífið Tískugyðjur komu saman í Kaupmannahöfn Tíska og hönnun Ómótstæðilegt risarækju hrásalat að hætti Lindu Ben Lífið Myndaveisla: Litadýrð, ást og valdefling í Gleðigöngunni Lífið „Við eigum ekki bara að hvíla í friði þegar við erum dauð“ Lífið Bent og Matta sjóðheitt par Lífið Fleiri fréttir Sigmundur yrði líklega skutlaður af Kristjáni Loftssyni Karin í Nola keypti 200 fermetra einbýlishús á Seltjarnarnesi Pissaði á sig í mátunarklefa Ómótstæðilegt risarækju hrásalat að hætti Lindu Ben Hætt að rannsaka mál hollenska Eurovision-farans Sonur Benedikts og Evu kominn með nafn Myndaveisla: Litadýrð, ást og valdefling í Gleðigöngunni „Við eigum ekki bara að hvíla í friði þegar við erum dauð“ Bent og Matta sjóðheitt par Ástin blómstrar hjá Birki Blæ og Ásdísi Stjörnulífið: Gleðigangan, ástin og Pamela Anderson Okkar eigið Ísland: Plataði vini sína uppi á jökli Þurfti að fullorðnast mjög snemma Krakkatían: Sólarstrandir, Ólympíuleikar og teiknimyndir Páll Óskar og Antonio deildu sviðinu á brúðkaupstertu Adele trúlofuð „Ef maður er sjálfsöruggur getur eiginlega hvað sem er virkað“ Þurfti að berjast við krabbamein í stríðshrjáðu landi Á lífi þökk sé þrjóskum engli Fréttatía vikunnar: Ólympíuleikar, erlend ódæði og rafhlaupahjól Rapparinn Travis Scott handtekinn í París Sást með huldumanni Óvinsæll í vinahópnum Mælir með að muna eftir sólarvörn og gleðinni í göngunni Kominn í pásu frá sterunum Mun gráta þegar nýr eigandi fær lyklana í hendurnar Alltaf að tala um barneignir „Hatrið má ekki sigra“ Stjörnurnar streyma á Sólheima Datt niður stiga fyrir framan samstarfsfélagana Sjá meira