Formaður félags kráareigenda: Ólöglegar aðgerðir lögreglu 17. janúar 2011 12:05
Lögreglan lokaði nokkrum skemmtistöðum í miðborg Reykjavíkur um helgina. Formaður félags kráareigenda kallar eftir frekara samstarfi og sendir lögreglunni tóninn. Aðfaranótt laugardags lokaði lögreglan að minnsta kosti tveimru skemmtistöðum í miðborginni og vildi meina að of margir gestir hefðu verið þar inni. Ófeigur Friðriksson formaður félags kráareigenda segir þetta ekkert nýtt. Lögregla hafi meira að segja farið inn á staði undanfarið og heimtað að starfsfólk blási í áfengismæla. „Í rúm þrjú ár höfum við verið að leita eftir betra samstarfi. Það er svolítið sérstakt að á sama tíma og lögreglan er að vaða inn á skemmtistaðina og gera það sem hún hefur verið að gera, og í sumum tilfellum ekki löglega, er hún með allt niður um sig þegar kemur að löggæslu í miðborginni á nóttunni og um helgar," segir Ófeigur. Hann segist ekki geta tjáð sig um málin um helgina, en þau verði skoðuð í vikunni. Félagið sé meðal annars komið með lögfræðistofu í málið sem sé að skoða þessi mál. „Við munum skoða hvert mál fyrir sig. Það gengur ekki að láta lögregluna vaða yfir sig. Okkar vilji er að hafa miðborgina örugga og skemmtilega og það er enginn hagur fyrir okkur að miðborgin sé í tómu tjóni eins og hefur verið undanfarið." Og hún er það? „Hún er það einfaldlega vegna þess að það eru örfáir lögreglumenn á vakt og með þessari hækkun á áfengisgjöldum sem hefur verið undanfarið þá er fólk að koma ölvaðra í bæinn."
Mest lesið Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Innlent „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu Innlent Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Innlent Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Innlent Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Erlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Fleiri fréttir Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Sjá meira