Innlent

Þrír handteknir til viðbótar vegna árásar á Players

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árásin var gerð á veitingastaðnum Players.
Árásin var gerð á veitingastaðnum Players.
Þrír til viðbótar hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fólskulegri líkamsárás nærri veitingastaðnum Players í Kópavogi aðfaranótt sunnudags. Um er að ræða þrjá karla en þeir eru á þrítugs- og fertugsaldri.

Fyrr í dag voru karl og kona úrskurðuð í gæsluvarðhald til 21. janúar vegna þessa sama máls. Þau eru bæði á þrítugsaldri.


Tengdar fréttir

Gæsluvarðhalds krafist yfir ofbeldismönnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í kvöld fram á gæsluvarðhald yfir tveimur aðilum sem grunaðir eru um alvarlega líkamsárás við veitingastaðinn Players í Kópavogi í nótt. Á Fésbókarsíðu lögreglunnar segir að dómari hafi tekið sér frest til morguns til að úrskurða um gæsluvarðhaldskröfuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×