Innlent

Ók á ljósastaur

Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild. Myndin er úr safni.
Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild. Myndin er úr safni.
Umferðaróhapp varð á Miklubraut skammt frá gatnamótunum við Grensásveg á áttunda tímanum í kvöld. Bifreið var ekið á ljósastaur og þurfti að flytja ökumanninn á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var ökumaðurinn ekki mikið slasaður. Hann var einn í bifreiðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×