Innlent

Reyndu að brjótast inn í skartgripaverslun

Tveir þjófar gerðu tilraun til að brjótast inn í skartgripaverslun í Spönginni í Reykjavík í nótt. Styggð kom að þeim áður en þeir höfðu stolið nokkru, en þeir sjást glöggt á upptöku úr eftirlitsmyndavél og er þeirra leitað.

Þá var brotist inn í apótek við Skipholt og einhverjum lyfjum stolið, en þjófurinn komst undan. Hinsvegar greip lögregla þjóf, sem hafði brotist inn í skyndibitastað við Fellsmúla. Lögregla rakti spor hans í nýföllnum snjónum þar til hún náði honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×