Innlent

Jón Gnarr sendi borgarstjóra Christchurch samúðarkveðju

Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík
Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík
Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, sendi Bob Parker, borgarstjóra Christchurch, samúðarkveðju í dag vegna jarðskjálftanna á svæðinu á þriðjudaginn en þeir hafa kostað tugi mannslífa og valdið gríðarlegu eignartjóni.

Jón sagði meðal annars í kveðju sinni að hugur sinn og borgarbúa væri með fjölskyldum og vinum hinna látnu. Þá sagðist hann hugsa til þeirra sem þjást af völdum náttúruhamfaranna og vonast til þess að björgunarstarf myndi ganga vel og hægt væri að bjarga fleiri mannslífum.

Reykjavíkurborg og Christchurch hafa í gegnum tíðina átt töluverð samskipti, einkum í tíð Mike Richardson, fyrrverandi borgarstjóra Christchurch.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×