Innlent

Gæsluvarðhalds krafist yfir ofbeldismönnum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árásin átti sér stað við Players.
Árásin átti sér stað við Players.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í kvöld fram á gæsluvarðhald yfir tveimur aðilum sem grunaðir eru um alvarlega líkamsárás við veitingastaðinn Players í Kópavogi í nótt. Á Fésbókarsíðu lögreglunnar segir að dómari hafi tekið sér frest til morguns til að úrskurða um gæsluvarðhaldskröfuna.

Þá voru tveir aðilar á tvítugs og þrítugsaldri úrskurðaðir í gæsluvarðhald í kvöld vegna gruns um aðild að innbroti í heimahús í Mosfellsbæ í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×