Urriði í hrygningu fraus í Stangarlæk 15. janúar 2011 07:30 Við vettvangskönnun fundust tugir urriða dauðir. Sérfræðingar telja mikinn fjölda dauðra fiska hafi leynst í læknum undir ógegnsæjum ís. mynd/veiðimálastofnun
Stór hluti hrygningarurriða hefur að öllum líkindum drepist í Stangarlæk í Grímsnesi eftir áramótin. Svo virðist sem urriðarnir hafi orðið innlyksa í litlu vatni og frosið í kuldakastinu í síðustu viku. Lækurinn er talinn helsta hrygningar- og uppeldissvæði urriðans í Apavatni. Veiðimálastofnun barst tilkynning um tugi dauðra urriða í Stangarlæk mánudaginn 10. janúar, en lækurinn er um tólf kílómetra langur og á upptök sín í Lyngdal á Lyngdalsheiði og fellur hann í Apavatn. „Þótt Stangarlækur sé ekki stór er hann talinn mikilvægur sem hrygningar- og uppeldissvæði, einkum fyrir urriða úr Apavatni. Hætta er á að verulegur hluti hrygningarfiska og seiða hafi farist. Það gæti haft áhrif á stofnstærð á næstu árum. Vert að gera frekari rannsóknir á afdrifum seiða á þessu svæði þegar aðstæður leyfa,“ segir á vef Veiðimálastofnunar. Við vettvangsskoðun mátti hvarvetna sjá þykkan klaka og botnfrosinn ís á læknum. Voru um fimm kílómetrar ísi þaktir en með engu vatnsrennsli. Alls fundust milli sextíu og áttatíu dauðir urriðar, flestir þrjátíu til fjörutíu sentimetra langir og voru þeir flestir frosnir í ís. Sérfræðingar Veiðimálastofnunar fundu engin dauð seiði en telja líklegt að seiði á svæðinu hafi einnig drepist. Sjö urriðar voru teknir til frekari skoðunar og kom í ljós að fiskurinn virðist hafa verið í miðri hrygningu sem er óvenjulegt þar sem hrygningartími urriða á Suðurlandi er helst í október og nóvember. Þessi óvenjulegi fiskdauði er nokkur ráðgáta að sögn sérfræðinga, en líklegast er að lækurinn hafi verið mjög vatnslítill í haust og framan af vetri. Í kjölfar rigningar á annan í jólum óx mjög í læknum og urriðinn er þá talinn hafa gengið upp í lækinn. Þegar stytti upp þvarr árvatnið fljótt og frysti í kjölfarið sem hefur valdið því að fiskarnir sátu eftir og drápust. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Innlent „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Innlent Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Sjá meira