Framleiðendum parmesanosta bjargað úr fjármálakreppunni 17. desember 2008 12:37
Það eru fleiri en bílaframleiðendur og bankar sem hafa orðið illa úti í fjármálakreppunni. Hið sama gildi um framleiðendur parmesanosta á Ítalíu. Stjórnvöld hafa gripið inn í málið svo að þessi heilagasta kú ítalsks landbúnaðar lifi af veturinn. Samkvæmt frétt í Wall Street Journal um málið ætla ítölsk stjórnvöld að kaupa 100.000 heila parmesanosta af ostaframleiðendum landsins og greiða fyrir það 50 milljónir evra eða sem svarar til rúmlega 8 milljarða kr.. Ostarnir verða svo aftur gefnir til góðgerðarsamtaka. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem ríkisstjórn Silvio Berlusconi grípur til aðgerða til að bjarga ostaiðnaði landsins. Fyrir skömmu keyptu stjórnvöld á Ítalíu 100.000 osta af tegundinni Gran Padano. Verð á parmesan er mjög hátt á heimsvísu og vegna fjármálakreppunnar og blankehita almennings á Vesturlöndunum hefur dregið verulega úr eftirspurn eftir þessum eðalosti.
Mest lesið Staðreyndum snúið á hvolf til að eigna ríkisstjórninni verðbólguna Viðskipti innlent Seðlabankinn hafi ekki önnur úrræði en að lækka vexti Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Tónleikastöðum fækkar: „Þetta er bara sorgleg þróun“ Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Spá áframhaldandi óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent „Allt að því galið“ að taka ekki þátt í séreignarsparnaði Viðskipti innlent Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Samstarf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira