Viðskipti innlent

Spá á­fram­haldandi ó­breyttum stýrivöxtum í næstu viku

Lovísa Arnardóttir skrifar
Peningastefnunefnd kemur saman í næstu viku til að ákvarða stýrivexti. Þeir hafa verið óbreyttir, 9,25 prósent, frá því í ágúst í fyrra.
Peningastefnunefnd kemur saman í næstu viku til að ákvarða stýrivexti. Þeir hafa verið óbreyttir, 9,25 prósent, frá því í ágúst í fyrra. Vísir/Vilhelm

Landsbankinn spáir því að Peningastefnunefnd Seðlabankans haldi stýrivöxtum óbreyttum þegar nefndin kemur saman í næstu viku. Í frétt á vef bankans segir að verðbólga hafi aukist umfram væntingar í júlí. Þó hún hafi verið almennt á niðurleið undanfarið hafi hjöðnunin verið hægari en vonir stóðu til.

Í ágúst hafa stýrivextir verið 9,25 prósent  í heilt ár og telur bankinn því að peningastefnunefndin haldi óbreyttum í næstu viku, sjötta skiptið í röð.

Í frétt bankans segir að síðustu ákvarðanir nefndarinnar hafi verið markaðar af mikilli óvissu á Reykjanesi vegna jarðhræringa auk óvissu tengdum kjarasamningum. Ákvörðunin sem verði tekin í næstu viku muni að öllum líkindum byggja á því hversu hægt verðbólgan hjaðnar.

Þá segir einnig að þegar nefndin kom síðasta saman, í maí, hafi verðbólga staðið í 6 prósentum.

„Þá hafði hún hjaðnað nokkuð hressilega mánuðina á undan en vextir haldist óbreyttir. Síðan hefur verðbólga aftur á móti aukist lítillega á ný og var 6,3% í júlí. Raunstýrivextir miðað við liðna verðbólgu hafa því lækkað um 0,3 prósentustig. Ef verðbólgan hefði haldið áfram að hjaðna duglega í sumar hefði hugsanlega mátt gera ráð fyrir lítilsháttar vaxtalækkun, en í ljósi nýjustu vendinga í vísitölu neysluverðs teljum við nánast útilokað að nefndin hefji vaxtalækkunarferli í næstu viku,“ segir í frétt bankans.

Í frétt bankans er einnig fjallað um vísitölu íbúðaverðs, sem hefur hækkað stöðugt síðustu mánuði, og undirliggjandi verðbólguþrýsting.

„Árshækkun vísitölu íbúðaverðs var 9,1% í júní og hefur ekki verið svo mikil síðan í febrúar 2023. Árshækkun raunverðs íbúða, þ.e. vísitala íbúðaverðs á móti vísitölu neysluverðs án húsnæðis, mældist 5,0% í júní og hækkaði úr 4,0% í maí. Árshækkun raunverðs hefur ekki verið meiri síðan í janúar 2023,“ segir á vef bankans og að kaupsamningum hafi einnig fjölgað verulega á milli ára. Því séu merki á markaði um líflegan íbúðamarkað en það verði að hafa þar í huga innkomu Grindvíkinga í kjölfar uppkaupa Þórkötlu fasteignafélags.

Hafa tekin varfærin skref

Á vef bankans segir að þó svo að verðbólga hafi aukist lítillega hafi verðbólguvæntingar þróast í hagstæða átt á flesta mælikvarða. Ein vísbending sé verðbólguálag á skuldabréfamarkaði.

Verðbólguvæntingar geti haft mikið að segja um verðbólguhorfur og peningastefnunefnd sé mikið í mun að koma böndum á þær.

„Peningastefnunefnd hefur tekið varfærin skref síðustu mánuði og haldið vöxtum óbreyttum í heilt ár. Fyrst nefndinni þótti auknar líkur á því á síðasta fundi að taumhaldið væri hæfilegt er erfitt að færa rök fyrir vaxtalækkun í næstu viku, enda hefur verðbólga aukist lítillega frá því síðast. Þótt vissulega hafi hagvaxtarhorfur einnig versnað í ljósi mikils samdráttar á fyrsta ársfjórðungi ber að hafa í huga að samdrátturinn skýrðist af birgðabreytingum en ekki samdrætti í hagstærðum á borð við einkaneyslu og fjárfestingu,“ segir að lokum í frétt bankans og að enn sé eftirspurnarþrýstingur á íbúðamarkaði og ekki farið að bera á verulega auknu atvinnuleysi.

„Því teljum við að peningastefnunefnd telji áfram þörf á þéttu peningalegu aðhaldi og sjái ekki ástæðu til að óttast ofkólnun í hagkerfinu að svo stöddu.“


Tengdar fréttir

Barátta Seðlabankans löngu töpuð

„Það er löngu orðið ljóst að stefna Seðlabankans til að „berjast“ við verðbólguna er löngu töpuð og morgunljóst að aðferðafræði þeirra við að hafa stýrivexti hér í tæpum 10% hefur beðið algjört skipbrot.“ Þetta sagði Vilhjálmur Birgisson í færslu á Facebook í dag. Hann var einnig gestur í Reykjavík síðdegis, þar sem hann sagði háa stýrivexti Seðlabankans fóðra verðbólguna.

Verðbólgutölur minnki líkur á vaxtalækkun „allverulega“

Ársverðbólga mældist 6,3 prósentustig í júní og jókst um hálft prósentustig milli mánaða. Birkir Thor Björnsson, hagfræðingur í greiningu hjá Íslandsbanka segir tíðindi morgunsins hafa komið starfsfólki bankans nokkuð á óvart.

Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar

Hagfræðideild Landsbankans segir það hugsanlegt að Seðlabankinn hefji vaxtalækkunarferli í október eða nóvember. Það fari allt eftir því hvenær verðbólga og verðbólguvæntingar benda til frekari hjöðnunar. 

Flýta ekki vaxta­á­kvörðun þrátt fyrir á­köll

Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna vill að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir verulega sem allra fyrst. Seðlabankinn segir að ekki sé til skoðunar að flýta næstu vaxtaákvörðun. 

Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019

Seðlabankinn í Evrópu lækkaði í dag stýrivexti bankans í fyrsta sinn síðan 2019. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að ástæða lækkunar sé að verð hækki eins hratt og að þau séu á góðri leið að ná verðbólgumarkmiðum sínum sem eru tvö prósent. Bankinn lækkaði stýrivextina um 0,25 prósentustig í 3,75 prósent úr fjögur prósent en þeir höfðu verið fastir í fjögur prósent frá september 2023.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×