Viðskipti erlent

Flytur fyrir­tækin vegna lög­gjafar um trans börn

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Musk fylgir hótunum sínum eftir og flytur höfuðstöðvar X og SpaceX.
Musk fylgir hótunum sínum eftir og flytur höfuðstöðvar X og SpaceX. Getty/FilmMagic/Bauer-Griffin/Axelle

Auðjöfurinn og athafnamaðurinn Elon Musk hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar samskiptamiðilsins X og geimferðafyrirtækisins SpaceX frá Kaliforníu til Texas.

Þar má nú þegar finna höfuðstöðvar rafbílaframleiðandans Teslu, sem einnig er í eigu Musk.

Ástæðan fyrir flutningunum er ný löggjöf í Kaliforníu sem kveður á um að skólum sé bannað að skylda starfsmenn til að veita upplýsingar um kynvitund nemenda en þetta nær einnig til þess að upplýsa foreldra.

„Þetta er síðasta stráið,“ sagði Musk á X og ítrekaði að hann hefði varað ríkisstjórann Gavin Newsom við því fyrir ári síðan að lög af þessu tagi myndu verða til þess að fjölskyldur og fyrirtæki flyttu frá Kaliforníu til að „vernda börnin“.

Þess má geta að Musk lýsti á dögunum yfir stuðningi við forsetaframboð Donald Trump á meðan Newsom hefur verið í fréttum síðustu daga sem mögulegur arftaki Joe Biden ef forsetinn ákveður að falla frá því að sækjast eftir endurkjöri.

Um er að ræða afar eldfimt mál í Bandaríkjunum, þar sem menn deila um hvað skólayfirvöld eiga og eiga ekki að gera þegar það kemur í ljós að barn er kynsegin eða trans. Aðgerðasinnar segja að virða eigi friðhelgi einkalífs barnsins á meðan aðrir segja foreldra eiga rétt á því að vita hvað er að gerast hjá barninu þeirra.

Musk, sem á trans dóttur og segist stuðningsmaður trans fólks, hefur áður sagst munu berjast fyrir löggjöf gegn læknisfræðilegum inngripum hjá trans börnum áður en þau verða sjálfráða. Þá hefur hann lýst kynlausum fornöfnum sem „fagurfræðilegri martröð“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×