Evrópsk lyfjafyrirtæki brjóta ekki samkeppnislög 16. desember 2008 10:55
Engar vísbendingar eru um að samkeppnislög hafi verið brotin af evrópskum lyfjafyrirtækjum. Þetta kemur skýrt fram í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem nýverið var gefin út í kjölfar húsleitar og rannsóknar á samkeppnisumhverfi evrópskra lyfjafyrirtækja fyrr á þessu ári. Í tilkynningu um málið segir að enn fremur kom fram að ekkert benti til þess að evrópsk lyfjafyrirtæki væru ekki í mikilli samkeppni. Frumkvöðlar og vísindamenn hafi hins vegar með réttu reynt að vernda uppfinningar sínar, sem beri vott um samkeppnina í þessum geira. Í niðurstöðu sinni viðurkennir framkvæmdastjórn ESB að lyfjaiðnaðurinn sé Evrópubúum lífsnauðsynlegur og að einkaleyfi séu nauðsynleg umbun fyrir nýjungar og hvetji til frekari rannsókna. EFPIA, samtök lyfjaframleiðenda í Evrópu og málsvari evrópska lyfjaiðnaðarins, kalla eftir meiri samkeppni á samheitalyfjamarkaði en slíkt myndi spara verulegar upphæðir sem síðan mætti nýta til að frumlyf bærust fyrr til fleiri sjúklinga. Forseti EFPIA, Arthur J. Higgins, forstjóri Bayer HealthCare, segir að í bráðabirgðaskýrslunni sé ekki viðurkennt hve flókinn evrópski lyfjamarkaðurinn er og háður ströngu regluverki. Tækifæri séu ekki nýtt til að fjalla um hin raunverulegu vandamál sem standi í vegi fyrir nýjungum, þróun og dreifingu frumlyfja. Þá segir framkvæmdastjóri EFPIA, Brian Ager, að skýrsla framkvæmdastjórnar renni á engan hátt stoðum undir þá yfirlýsingu, sem gefin var út í upphafi rannsóknarinnar, að lyfjaiðnaðurinn standi í vegi fyrir nýjungum.
Mest lesið Staðreyndum snúið á hvolf til að eigna ríkisstjórninni verðbólguna Viðskipti innlent Seðlabankinn hafi ekki önnur úrræði en að lækka vexti Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Tónleikastöðum fækkar: „Þetta er bara sorgleg þróun“ Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Spá áframhaldandi óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Samstarf „Allt að því galið“ að taka ekki þátt í séreignarsparnaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira