Sport

Guðjón Valur í beinni á netinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón Valur í leik með Rhein-Neckar Löwen.
Guðjón Valur í leik með Rhein-Neckar Löwen. Nordic Photos / Getty Images
Guðjón Valur Sigurðsson verður í eldlínunni þegar að Rhein-Neckar Löwen tekur á móti franska liðinu Chambery í Meistaradeild Evrópu.

Það er heilmikið undir í leiknum þar sem að Rhein-Neckar Löwen verður að vinna þriggja marka sigur til að tryggja sér sæti í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Leikurinn hefst klukkan 16.30 og verður í beinni útsendingu á vef Handknattleikssambands Evrópu, ehftv.com.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×