Sport

Jakob Jóhann í 27. sæti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob Jóhann Sveinsson.
Jakob Jóhann Sveinsson. Mynd/Valli

Jakob Jóhann Sveinsson keppti í morgun í 200 m bringusundi á HM í 25 m laug sem nú fer fram í Dúbæ.

Jakob Jóhann varð í 27. sæti af 54 keppendum á 2:10,92 mínútum. Hann bætti sinn besta tíma á árinu en var rúmum þremur sekúndum frá Íslandsmeti sínu.

Jakob Jóhann varð í 25. sæti í 100 m bringusundi fyrr í vikunni en á eftir að keppa í 50 m bringusundi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×