Innlent

Nýir eigendur fundu kókaín í þakklæðningu Benz-bifreiðar

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Ungir menn, sem voru að gera upp gamlan Benz Austur á Selfossi í gærkvöldi, sáu fyrir tilviljun gat inn í þakklæðninguna á bak við baksýnisspegilinn.

Við nánari athugun reyndist þar falinn poki með átta grömmum af efni, sem talið er vera anfetamín eða kókaín, og létu þeir lögreglu vita.

Vandséð er hver hefur falið efnið þarna því bíllinn hefur gengið kaupum og sölum undanfarin misseri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×