Innlent

Féll af þaki sumarhúss

Maður féll af þaki sumarhúss við Seljalandssel í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli á laugardaginn. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að maðurinn hafi slasast alvarlega og var hann fluttur á sjúkrahús í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var hann settur í öndunarvél, en frekari upplýsingar um líðan hans liggja ekki fyrir.

Þá voru níu ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu um helgina en sá sem hraðast ók var á 133 km. hraða þar sem leyfilegur er 90 km. hraði.  Þetta var við Kúðafljót í Skaftárhreppi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×