Innlent

Orkustefna fyrir Ísland: Fimmtíu umsagnir bárust

Stýrihópur sem iðnaðarráðherra skipaði síðla árs 2009 til að vinna heildstæða orkustefnu fyrir Ísland birti í janúar sl. drög að orkustefnu. Fjölmargar umsagnir hafa borist fré einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum.

„Ákveðið var að hafa opið umsagnarferli um drögin til að fá fram sjónarmið allra þeirra sem vildu láta sig málið varða. Skilafrestur umsagna var ákveðinn 9. febrúar en sökum fjölda tilmæla var hann framlengdur til 20. febrúar,“ segir í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. „Alls barst 51 umsögn, 21 frá einstaklingum og 30 frá fyrirtækjum og stofnunum.“

Þá segir enfnremur að stýrihópurinn muni á næstu vikum vinna að því að fara yfir umsagnirnar og í kjölfarið leggja lokaskýrslu fyrir iðnaðarráðherra.

Drögin má nálgast á vefsíðunni www.orkustefna.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×