Særði blygðunarsemi nágranna sinna 26. febrúar 2011 14:20 Héraðsdómur Reykjavíkur við Lækjartorg.
Sextíu og sjö ára karlmaður var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir kynferðisbrot með því að hafa sært blygðunarsemi nágranna sinna er hann stóð fyrir framan glugga á heimili sínu í fráhnepptri skyrtu og strauk á sér getnaðarliminn. Frá árinu 2005 hefur lögregla fengið ellefu tilkynningar um „afbrigðilega hegðun" mannsins. Hann neitar sök um að hafa sært blygðunarsemi nágranna sinn en kannast við að hafa strokið getnaðarlim sinn fyrir framan gluggann, en börn voru að leik fyrir utan blokkina þar sem maðurinn býr. Í dómnum segir að óskað hafi verið aðstoðar lögreglu þar sem maður væri að handleika getnaðarlim sinn í augsýn barna og fullorðins fólks. Lögreglumenn ræddu við manninn sem sagði að „þetta væri mjög eðlileg hegðun og að allir gerðu svona. Hann gæti ekki að því gert að einhverjum börnum þætti þetta ógeðslegt. Það kæmi þeim ekki við hvað hann gerði á sínu heimili." Í skýrslutöku hjá lögreglu sagði maðurinn að hann hafi kannski „klórað sér í pungnum" en hann hafi ekki verið að fróa sér úti í glugga, en verið geti að einhverjir hafi túlkað það svo. Við aðalmeðferð málsins sagði maðurinn að atvikum væri rétt lýst í ákæru en neitaði sök um að hafa sært blygðunarsemi nágrananna. Hann sagðist hafa staðið í um eins metra fjarlægð frá glugganum um tíma og hafi hann þá heyrt í börnum úti á leikvelli. Hann sagðist geta verið að hann hafi klórað sér í „neðri hlutanum" þar sem hann stóð við gluggann. Þá sagðist hann eiga það til að rölta léttklæddur um íbúðina þar hann stundi leikfimisæfingar og svitni mikið. Nágranninn sagði fyrir dómi að hann hefði verið að horfa út um glugga á heimili sínu í blokk andspænis húsi þar sem maðurinn býr. Hann sagði að hann hafi séð hann í gegnum gluggann íklæddan rauðri skyrtu en ber að neðan „að hamast á limnum á sér" en börn voru við leik á leikvelli sem er á milli blokkanna. Þegar hjónin fóru út til að forða börnunum í burtu var maðurinn enn að. Niðurstaða dómsins er að maðurinn er sekur um að hafa sært blygðunarsemi þeirra sem urðu vitni að háttsemi hans. Maðurinn var dæmdur í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Mest lesið Eldur í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í Úkraínu Erlent Næsta lægð nálgast landið og færir með sér gula viðvörun Veður Úkraínumenn vilji valda upplausn Erlent Eigi að standa saman um fjárfestingu í jafnrétti til náms Innlent „Fullorðna fólk, grow up!“ Innlent Allt svo snyrtilegt við höfnina í Vestmannaeyjum Innlent Þykir sárt að vera stunginn í bakið af vini sínum Innlent Löturhæg umferð inn í borgina Innlent Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Innlent Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Innlent Fleiri fréttir Eigi að standa saman um fjárfestingu í jafnrétti til náms Allt svo snyrtilegt við höfnina í Vestmannaeyjum Löturhæg umferð inn í borgina Námsgögn verði einnig gjaldfrjáls í framhaldsskólum Þyrluflugmenn uggandi: „Klárt að þetta hefur neikvæð áhrif“ Þykir sárt að vera stunginn í bakið af vini sínum Treystir Útlendingastofnun fullkomlega Eldur í flugskýli í Múlakoti í nótt Fjölskyldur sendar úr landi og viðvörunarkerfi í Grindavík Enn gasmengun í lægðum en rafleiðni nálgast eðlileg gildi Sérsveitin kölluð til vegna manns sem skaut úr haglabyssu „Fullorðna fólk, grow up!“ Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Helgi Magnús ritar ráðherra bréf og Ásmundur Einar um menntakerfið Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Mótmæla brottvísun stórs hóps hælisleitenda Þyki málið miður og til greina komi að breyta gönguleið „Þetta getur ekki verið svona aftur á næsta ári“ „Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“ Rafleiðni og vatnshæð aftur lækkandi í ánni Skálm Hinseginfáni skorinn niður í Hveragerði Krakkar beri ekki heldur virðingu fyrir eigin úlpum og Airpods Einn var stunginn í Breiðholti Gengur ekki að fólk sé að rústa húsum á Þjóðhátíð Dagskrá Hinsegin daga og bein útsending frá hátíðahöldum „Sjaldan hefur öðru eins stórgrýti verið kastað úr glerhýsi“ Vara við gasmengun við upptök Skálmar og Múlakvíslar Á bak og burt eftir að hafa brotið og bramlað í bústað Ummælin komi á óvart „jafnvel frá Sjálfstæðisflokknum“ Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Sjá meira